|
|
26.09.2008 10:05:02 / bergey
Það er virkilega góð ástæða fyrir skriftar stoppinu mínu í þetta sinn. Ég er einfaldlega búin að vera of þreytt til að skrifa. Eva María er á tanna flippi og sefur ekkert of mikið á nóttinni. Tristan er búin að vera með eyrnabólgu í vinstra eyra og tveim dögum eftir lyfjakúrinn fékk hann í hægra . Hann vaknaði bara á nóttinni þegar að systir hans loksinns svaf. ÆÐI. Þrátt fyrir það erum við í góðum gír.. Það var fjölskyldu dagur í leikskólanum hans Tristans, voða húggó þar. Ég er líka að byggja leikvöll fyrir utan húsið, Það verður svaka fínt, þetta tekur bara allt svo langan tíma hjá mér. Það sníglast þó áfram hjá mér. Ég tek mynd af því þegar að það byrjar að taka form, svo þið sjáið hvað það verður. Veðrið er búið að koma mikið á óvart, sól og hlýtt í langan tíma. Gjeggað september veður. Við erum að fara til Sibbu laugardag og gistum. Hún er að bjóða í síðbúin afmælis mat. Það er líka hestamót þar uppfrá svo að við kíkjum líka á það. Annars allt í gúddí og góða helgi heillin mín...
»
26.08.2008 11:35:56 / bergey
Jæja gott fólk, var þetta ekki bara góð pása. Eins og sést á myndunum sem ég var að setja inn þá er margt búið að gerast hjá okkur. En það allra mikilvægasta í augnablikinu er að Katrín er búin að fæða STELPU, 16 merkur og 54 cm. Fréttir segja til um mikið hár og mikla fegurð. Ég var að bæta inn myndum frá Júlí og Ágúst, enn sem komið er. Það sem er líka fréttnæmt er:
- Það er búið að skíra Evu Maríu Þórðardóttir. 06.07.08
- Jón Pálmi var á Íslandi í viku, mamman ómöguleg.
- Við búin að vera með mikið af heimsóknum.
- Jón byrjaður í 2b og í dansi. Loksinns.
- Tristan obbó ánægður í leikskóla.
- Við búin að fara í stórt brúðkaup hjá nágrönnunum.
- Trissi á að fara með leikskólanum í skálaferð og sofa í 2 nætur.
- Eva María kann að segja MAMMA bara 6 mánaða.
- Alexander byrjaður í kolding gymnasium.
- Alexander kominn með danska kærustu.
- Eva maría er með kvef. Aldrei séð svona mikið hor.
- Tristan hættur með bleyju. Geðveikur þvottur.
Annars er bara allt í gúddí, nema hvað að það eru allt of fáir sem kvitta á síðuna hjá mér. Ég veit að ég er örlítið sein að koma með fréttirnar en þykir það bara stór mál að fara í tölvuna. Þvílíkur tímaþjófur. Katrín er komin með myndasíðu, þar sem hægt er að sjá prinsessuna hana Ástu litlu skeidflot
. Hún er bara sæt. Það er gæðingakeppni næstu helgi í Herning, Þórður er að dæma en við hin ætlum að gista hjá Sibbu frá laug. til sunnud. en Jón verður í Hoven hjá Simon, besta vini sínum. Sibba ætlar að keppa á hestinum hans Þórðar og gera stóra hluti þar sem að hún er búin að selja sinn keppnishest. Bara spennó. Þórður var að keppa á honum um helgina og vann með yfirburðum 5 gáng og T2, og vann gæðingaskeið. Fínasta helgi fyrir hann. Jæja krúttin mín bið að heilsa í bili og verið góð við hvort annað, knús.
»
19.06.2008 07:33:16 / bergey
 Jón Pálmi 8 ára krútt
Loksinns kom að því að Jón varð 8 ára. Búinn að bíða lengi eftir því. Það var mjög góð veisla í íþróttahúsinu. Þeir léku sér í kaðla salnum, fóru í sund, spiluðu fótbolta og borðuðu "góðan" mat. Hann fékk fullt af peningum og er mjög ánægður með það. Þetta eru búnir að vera nokkuð busy dagar, Tristan með veislu á fimmtudegi fyrir smábörn, amma, afi, Sibba og Júlía á sunnudaginn, bæði í kökur og mat. Svo var veislan hans Jóns á mánudeginum og eftir veisluna fékk hann 3 stráka með heim. Ég held að það hafi verið jafn gott og veislan. Fengu að gera sína eigin pizzu í kvöldmat. Það er loksinns farið að rigna eitthvað að viti, ca. rigning hálfan dag ef það nær því en nóg fyrir túnin okkar. Ég reikna sterklega með að það verði hey skortur í ár ef þetta heldur svona áfram. Tristan byrjaði í leikskóla á þriðjudaginn og það gengur þvílíkt vel. Hann talaði að vísu ekkert fyrri part dags en svo OPNAÐIST fyrir skjóðuna. Þeim finnst þetta æðislegt hvað hann er auðveldur og góður. (ættu að sjá hann heima) Þannig að mamman er svakalega glöð að hann sé byrjaður og getur þá farið að gera eitthvað aftur, í staðinn fyrir að leika allan daginn. Eva braggast mjög vel og er orðin svakalega fyndin, sérstaklega þegar hún skelli hlær. Því er bara ekki lýsandi. Alexander er að fara í síðasta prófið á föstudag og er búin að standa sig ágætlega, var ekki mjög hrifin af því að fara í munnlegt stærðfræði próf, ég skil það vel. Við vorum svo heppin að getað heimsótt Mæju frænku hjá Ívari og Siggu og eitt góðum degi með þeim. Þær myndir eru fastar í myndavélinn því ég gleymdi kortinu heima. Finn út úr því seinna. Knús og kossar Afmælismyndir í myndasöfn, það eru óvart nokkrar með sem eru óskýrar, sorry.
»
12.06.2008 15:13:44 / bergey
Hann á afmæli í dag, hann Tristan!!
gott veður og afmælisbarnið alveg í skýjunum med daginn. Gestir og margir pakkar og TRAKTOR KAKA sem að mamman bakaði og skreytti.
»
26.05.2008 12:35:59 / bergey
Þá kom að því... Ég verð að afsaka að ég náði ekki að blogga áður en ég fór til íslands. Sem gerði það að verkum að alltof margir vissu ekki að ég var þar. Sorry. Ég skellti mér semsagt til ísl. þann 15 maj, með Evu Maríu með mér. Ég var boðuð í brúðkaup, sem mér þótti mjög óhefðbundið og skemmtilegt. Hún Gunnhildur og hann Rikki gengu í það heilaga á föstudags kvöldið og gerðu það mjög vel. Svaka stuð . Við stoppuðum bara í 5 daga og náðum því ekki að heimsækja alla sem við vildum . Það var annars mjög huggó hjá ömmu og afa, en þvílíkt dekur. Það er loksinns komin rigning hér heima, það er búið að bíða. Það er búina að vera svo mikil sól að lóðin hjá okkur var að sviðna. Og ég breinið gaf áburð, úps. Og stóð svo með garðslönguna í marga daga á eftir og vökvaði. Svona er þetta, maður lærir svo lengi maður lifir. Og trúið mér ég lifi, hehehe. Strákarnir söknuðu okkar Evu, en eru að jafna sig á því. Þeir eru bara sem hressastir og algjör krútt, mömmu strákar. Þeir höfðu mjög gott af því að vera bara með pabba enda var hann mjög þreyttur á kvöldin og fór snemma í bælið. Hér eru annars allir bara hressir og kátir og í góðum gír. Knús og kossar
»
03.04.2008 11:38:39 / bergey
 Jæja þá er það ákveðið. Hún verður kölluð Eva María, allavega þar til hún verður skírð. Hehehe... Það er nú heil mikið búið að gerast síðan hún fæddist. Þórður fækk heimsókn frá Íslandi, Gummi, Gulli, Stjáni, Jónas og Eiríkur komu og voru yfir helgi. Mjög hressir og líflegir nema á laugardeginum . Svo komu Ásta og Júlli og voru yfir alla páskana og aðeins lengur með öllu tilheyrandi. Rosalega huggó, nema hvað að þau tóku snjóinn með sér frá Ísl. en sem betur fer fóru þau með hann aftur heim . Við vorum með menn í heimsókn um helgina, hesta kalla úr fyrpinum, Steini og Smári heita þeir. Þeir voru mjög hressir og skemmtilegir. Jón fór aldeilis illa á auga um daginn, eins og sést á myndunum. Hann var svo óheppinn að það var hlaupið tvisvar á hann á sama stað og í þriðja sinn þá rakst hann sjálfur á, aftur á augað. Auðvitað sprakk æð með öllum þessum látum og útkoman eins og á myndunum. Tristan er alltaf jafn hressilegur, hann fékk að vísu hálsbólgu í síðustu viku og svo hita um helgina en er mjög fljótur að hrista allt svona af sér. Hann reyndi í fyrsta sinn að ljúga að mér, viljandi, á mánudaginn. Hann lá úti í kerru og var búinn að liggja smá stund og dunda sér, þegar að hann kallar á mig og ég opna hurðina út. Hann horfði smá stund á mig og segir svo að hann vilji koma inn. Ég sagði þá að hann ætti að leggja sig svolítið en þá var hann snöggur og sagðist vera að vakna og búinn að sofa. Óne ónei, það byrjar snemma... Ég er að fara í fimmtugs afmæli á morgun, hjá endurskoðanda okkar. Verð að fara ein með Evu því að Þórður er að fara að keppa á hestamóti og tekur strákana með sér. Það verður líklega fínt því hún sefur svo vel á kvöldin og ég tek bara barnavagninn með inn. Jæja nóg komið í bili, putta krampar. Knús og kossar til allra.
»
22.02.2008 09:36:52 / bergey
 Sætust í okkar heimi... | Jæja gott fólk þá er hún komin, prinsessan mín. Hún er svo falleg, og hún er svo góð, og hún er svo vær, og hún er svo dugleg, og hún er svo mjúk og svo rosalega lík mér. Hún fæddist þann 14 feb. kl.03:45 og var 2940 gr og 51 cm. Fullkomin. Hún kom með svakalegum látum og byrjaði á því að kynnast verstu hlið mömmu sinnar, með öskri og blóti. En hefur bara heyrt blíðyrði síðan.  Pabbinn er alveg húkkt á því að nafnið Vala verði að fylgja henni en annars má ég skýra hana hvað sem ég vil því hann kallar hana hvort eð er bara Vala... Strákarnir ( allir 3 ) eru þvílíkt seldir. Hún á svo eftir að stjórna þeim með bros á vör. Bara dúlla aldarinnar. Ég setti inn myndir í myndasöfn, efst til vinstri svo að þið getið skoðað hana betur. Passið ykkur á því að skoða ekki of lengi þá lendið þið í trans eins og ég.
Knús og kossar Bergey
»
01.10.2007 19:58:41 / bergey
Töffarinn Mmm kaffið gott Mömmu koss (22 vika) Jæja gott fólk, takk fyrir síðast. Það eru alltaf nýjar fréttir hjá mér. Nú eigum við von á sjötta fjölskyldu meðlimnum, voða spennó. Öllum heilsast vel og fyrir það mesta í góðu skapi. Nema hvað, ég er búin að missa öll gemsa númer úr símanum mínum. Allir sem vilja að ég hafi númerið þeirra meiga senda sms með nafni svo ég geti geymt upp á nýtt. Tölvan okkar rauk fyrr á árinu þannig að ég er ekki með mörg netföng og nú er harði diskurinn í vondu skapi og allar myndir fastar þar inni. Huggó Nóg í bili þið getið ekki ætlast til of mikils, ég er rétt að hita upp, vonandi. Knús og kossar.
»
01.02.2007 21:10:01 / bergey

Ha ha ha ha.... Gunnsa mín gerðu bara grín að mér það er allt í
lagi. Nema hvað, ég er alltaf jafn busy. Busy doing
nothing. Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni og
alltaf nóg að gera í prívatinu. Það sem er það besta fyrir
utan börnin er að við erum búin að fá nýtt á gólfið í stofunni og
helminginn af eldhúsinu. Víð erum líka búin að rífa út af
baðherberginu og leggja flísar og gera glerflísavegg í
sturtunni. Þannig að baðið uppi er orðið næstum því svaka
flott. Vantar smá atriðin en það kemur næstu daga. Hann
Stefán maðurinn hennar Önnu var hjá okkur föstudag og
laugardag og þá vantaði bara að fúa. Snillingur
maðurinn. ´Og við líka því nú er búið að fúa.
Ég náði mér í pest í miðri síðustu viku og er alveg að verða
búin að jafna mig. Ég er semsagt ekkert búin að vera við
vinnu í vikunni. Hræðilegt alveg hreynt, samviskubæturnar
vaxa alveg upp úr vösunum á mér. Ég hef sjaldan upplifað
annað eins af hori, verkjum og hita.
Drengirnir er búnir að sleppa frekar vel, Tristan fékk smá pest
en það er eiginlega allt.
Jólin gengu mjög rólega og huggulega fyrir sig, við vorum hérna
heima fjölskyldan og nutum þess að vera að drukkna í pökkum.
Þvílíkt og annað eins haf af dóti, vitiði hvað það er erfitt að
pakka þessu út úr umbúðunum. Tekur alveg heila eilífð.
Aðfangadagur hjá okkur var frekar mildur, hiti og sól, þannig að
Jón fór út að klifra uppí tré í stuttermabol.
Það er alveg brjálað að gera hjá Trissa að læra ný orð.
Pabbi hans var frekar skakkur í framan þegar að ég spurði hann (
trissa ) Hvort að hann kynni að segja Barbie. He he
he... Bara krútt Hann lærði víst líka orðið legestue í
dag en gengur ekki svo vel að endurtaka það.
Jón pálmi blómstrar í skólanum en finnst minna gaman í
S.F.O. Þar er víst eitthver stór strákur sem stríðir og
meiðir. Honum finnst ótrúlega gaman að læra stafina og
uppgötva að þetta tengist allt saman og myndar orð.
Skrýtið...
Jæja krúttin mín hafið það gott í alla nótt. Svaka
rím... Ég er að fara á vetrar mót (hestamót) annað kvöld og á
fjón á laugardaginn. Ætla að skella mér til Önnu og Stebba og
drösla henni með í Ikea. Það er kominn tími til að ég fái
hillur í sjónvaps stofuna.
Heil og sæl og knúsið hvort annað frá mér



Hverjum finnst ykkur ég líkjast.
»
16.12.2006 12:09:14 / bergey

Heil og sæl
öll sömul. Ég er þokkalega á blótinu núna, var búin að skrifa
helling og ætlaði svo að setja inn mynd og var aðeins að klaufast
og þá hvarf allt. En verð að skrifa það mikilvægasta aftur og
það er heimilisfangið mitt svo að ég tryggi mér jólakort.
Østerbyvej 19, 6580 Vamdrup. Nýtt gemsa nr. +45
51881316 og nýtt e-mail info@elitehest.dk . Ég er ekki
að bjóða uppá að fólk eigi að senda jóla sms eða e-mail, kort eru
kær komin.
Ég sagði einnig frá árshátíðinni sem var haldin 18 nóv. í
50-60 stíl og ég var í Tviggí það var þvílíkt gaman nema þegar
allir stóðu up og sungu afm. sönginn fyrir mig. Minna
gaman. Svo skrifaði ég helling meira en er of fúl til að
endurtaka það. Þannig að ég set nokkrar myndir með í
staðinn.
Knús og kossar
 
 
Þarna eru Jón og Júlía(Sibbu dóttir) og Jón og Birgitta að gera
leikrit.
»
08.10.2006 11:56:05 / bergey
Já svona getur þetta farið úr því að ég er engin tölvu
fíkill. SORRÝ Það er auðvitað ofboðslega mikið
búið að gerast síðan síðast en ég vil byrja á því að votta
fjölskyldum Bryndísar Evu, Rósu Björg og Braga mína samúð.
Það á enginn að þurfa að kveðja börnin sín. Svo
sorglegt
Sýningin í bómullarverksmyðjunni gekk þvílíkt vel en það eru
ekki komnar myndir á heimasíðun hjá Kifa en þeir sem selja okkur
litina og vörurnar sem við notum, Tahe eru búnir að setja nokkrar
myndir inn á sína síðu. http://www.tahe.es Það þarf fyrst
að vela yfir á ensku, svo inn í news og það er hægt að klikka á
show Danmarcia. Það er bara mynd af öðru módellinu mínu en
það kemur meira seinna á kifa síðuna. Þetta var major
gaman.
Það er auðvitað búið að eyða heilli helgi síðan á hestamóti en í
þetta sinn fannst mér sérstaklega gaman því að hann Þórður minn
vann töltið á hesti sem heitir Elvis, sem er til sölu hjá
honum. Algjör töffari, fylgir kannski nafninu???
Er eitthver sem getur gefið mér góð katta ráð. Ég þarf að
losna við kött sem vill helst búa hérna en hann er ekki
velkominn. Kemur meira að segja inn og skítur
Kötturinn sem fylgdi húsinu vill alls ekki inn, þess vegna má hann
alveg vera hér en vandamálið er að þeir eru svo líkir að ég þekki
þá varla í sundur. Nú er ég búin að fatta að "okkar" köttur
öskrar og kvæsir en hinn mjálmar. Hvað geri ég, ég hata
ketti!!!
Jæja nú er þessi helgi að verða búin, ég var á námskeiði í Köben
í gær hjá Sthur, það var bara gaman. Þórður er að kenna langt
upp í norður Jótlandi og kemur heim í kvöld. Þannig að Habbý
var að passa í gær. Og sem betur fer var hún hér því að ljóti
kötturinn komst inn og skeit og hún náði honum út og þreyf upp
ógeðið. My hero.
Af strákunum er þetta helst: Tristan kvefaðist í gær og það
passar alveg, því hann er að fá 4 augntennur í einu. Skrítið
að kvefist við tanntökur en svona erum við öll misjöfn. Hann
dafnar annars mjög vel og er sætari en nokkru sinni. Jón
hefur það ofboðslega gott þessa dagana, það er búið að vera
verkfall hjá þessum bévítans fóstrum og hann hefur fengið að horfa
meira á teiknimyndir en nokkrun tíman fyrr. Sem betur fer er
verkfallið búið... Hann er mjög ánægður í skólanum og finnst
mjög spennandi að læra. Skil ekkert hvaðan hann hefur
það???
Ég ætla að reyna að vera dugleg og setja inn nýjar myndir
fljótt. Knús og kossar.
»
23.08.2006 07:24:15 / bergey
Takk kærlega fyrir kveðjurnar snúllurnar mínar.
Eins og ég gaf til kynna í síðasta bloggi þá er búið að vera svo
mikið að gerast hjá okkur. Og Þórður með mikið meira en nóg
að gera í hesta bransanum, að það hálfa væri nóg. Við vorum
samt búin að undirbúa okkur undir það að svona yrði þetta vonandi
fyrsta árið. En samt finnst mér ég vanrækta vina og
fjölskyldubönd. Það mætti næstum kalla mig grasa ekkju, en
líka bara næstum því...
Við vorum á hestamóti síðustu helgi og erum að fara á
Gæðingakeppni um helgina, lengst uppi í norður Jótlandi.
Þórður er að fara að dæma og við dröslumst bara með. Enda ef
veðrið er gott þá fer ég með strákana í Jesperhus
blomsterpark. Þvílíkt flottur garður. http://www.jesperhus.dk/
Það er ofboðslega mikið að gerast í skólanum þessa dagana, stór
plön fyrir framtíðina og margt skemmtilegt í vændum. Það skal
ekki undra mig að eftir 1-2 ár þá er þetta virtasti
hárgreiðsluskóli í Danmörku. www.kifa.info Kíkið hvar ég
vinn.
Við kennararnir í skólanum og skólameistarinn erum að fara að
halda rosalega stóra sýningu í Vejle, í ógeðslega sróru húsnæði sem
er eldgamalt og var einu sinni stæðsta bómullarverksmiðja í
danmörku. Sumar vélarnar og svoleiðis dót er þar enn.
Rosa spennó.
Það er sveinspróf í skólanum í gær og í dag þannig að í gær fór
ég með nýjustu bekkina inn í Fredericia í sýningasalinn og var með
kennslu á vörunum sem við notum, voða huggó. Í dag má ég bara
bara mæta þegar ég vil og panta það sem okkur vanta, ég sé um
lagerinn. Og svo var Jes (skólastjórinn) að fiska eftir
klippingu. Það er allt sem ég þarf að gera, svo bara snemma
búin. Svo verð ég að vísu að fara niður í skóla þegar
stepurnar eru búnar með uppsetningu á síðu hári og sjá hvernig
gekk. Hvort þær hafi nokkuð verið að hlusta á mig???
Í morgun mátti ég sofa eins lengi og ég vildi, Þórður tók
strákana og sendi þá af stað og fór sjálfur að vinna, rosa
næs. Nema hvað að 7 mínontur yfir 8 þá gat ég ekki legið
lengur, bara pirrandi. Ég held ég fari bara að gera hreint úr
því ég hef svo mikinn tíma.... Knús bæ bæ
»
13.08.2006 07:27:28 / bergey
Sæl og bless elsku dúllurnar mínar. Ég er komin með netið
loksins, loksins, loksins. Það er ekkert lítið búið að gerast
síðan síðast. Vá ætli ég muni það allt, not.
Það vita nú flestir að ég er flutt og er mjög ánægð með nýja
húsið mitt og allt sem því fylgir. Við erum ekki komin með
ljós allsstaðar og ekki búin að pakka upp úr öllum kössum, eingöngu
vegna þess að ég get ekki ákveðið mig hvar hlutirnir eiga að
vera.
Mamma og pabbi komu til mín í byrjun júlí, í hitanum. Það
var mjög gaman þar til að töskunni minni var rænt.... Þvílíkt
maus að missa "allt" sitt á einu bretti. Það sem var þó verst
er að ég var með báða bíl lyklana í veskinu, bílinn fullann af dóti
og bæði börnin með úti í búð. Það var mjög dýrt að láta draga
bílinn tvisvar og skipta um sviss og búa til nýja lykla. Nema
hvað við verðum bara vera glöð yfir því að vera við hesta heilsu og
hafa það að öllu öðru leiti gott.
Við þórður giftum okkur þann 14 júlí,(sjá myndir) það var mjög
gaman og Katrín og Júlíus Viggó náðu að koma deginum áður.
Fyrir utan að ég kom 25 mín. of seint í kirkjuna þá gekk allt annað
eins og draumur. Enda engin önnur tímasetning á planinu og
ekkert plan... hihihihí
Presturinn sem var ný útskrifuð ung stúlka spurði Þórð hvort að
hann væri farinn að hafa áhyggjur. En nei ekki hann, bara
róleg hún kemur. Og það gerði hún í mömmu kjól sem er líklega
35 ára gamall en smell passaði á mig, voða voða fín. Þetta
var mjög huggó og allir sátu í kringum altarið því við vorum svo fá
og Tristan mátti alveg klifra og príla eins og hann vildi.
Svo var tekið nokkrar myndir og rúllað heim á leið. Úti í
garði vorum við með langborð þar sem við sátum og borðuðum
grill matinn og hugguðum okkur með músík og gott veður. Þetta
var bara mjög góður dagur í alla staði.
Þetta verður all svo langt ef ég á að skrifa allt þannig að þið
fáið þetta í áföngum. Skrifa meira fljótt. Og já þeir
sem sendu mér sms eftir 10-11 júlí, hafa sent í ræningjana og
Soffía frænka er ekki ánægð með það. Bless í bili.
»
16.06.2006 06:56:22 / bergey

Sætir bræður
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag, hann á
afmæli hann Jón Pálmi, hann á afmæli í dag. Loksinns loksinns
6 ÁRA.
Það verður svaka stuð hjá okkur í dag, en
sólin svíkur okkur. Það er engan milli veg að finna, við
vorum að strákarnir gætu leikið sér í vökvunartækinu og kælt sig
þannig en það er bara ekki nógu heitt ennþá. Hann fær
nefnilega trambolin, svona stórt. Hann verður aldeilis hissa
þegar hann kemur heim úr leikskólanum.
Nú byrja ég á byrjun. Hann vaknar og ég kom
syngjandi inn til hans, eitt stórt bros sem söng með (ég á afmæli í
dag...) Morgun matur og svo opnað pakkann frá ömmu og afa, svaka
fín föt og tvær bækur. Hann hoppar í fötun, verður að
vera smart þegar maður á afmæli. Hann fékk að fara með skóla
rútunni í morgun (stór draumur hjá stórum strák), sem sagt sóttur
við innkeyrsluna okkar. Svo sæki ég hann og hina 6 ára
strákana kl.12 og þeir koma heim og hoppa og fá meiri köku.
Vona bara að það komi smá sól, þá er alla vegna vatnsbyssu
veður.
Ég mundi líka allt í einu að ég gleymdi að setja
inn myndirnar af Tristn þegar hann var klippur. Var búin að
lofa.
Eigið góðan dag, ég veit að ég geri það ( ef ég
kemst að á trampólíninu)
 

»
12.06.2006 18:13:00 / bergey
Hann á afmæli í dag, hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Tristan, hann á afmæli í dag.
Loksinns er hann 1 árs og að kafna úr hita. Ég held að það
eigi að baka okkur lifandi. Létt steikt í sólinni. Það
er hreinlega hvergi verandi, hvergi frískt loft. Þetta hlýtur
að líða hjá fljótt, vonandi.
Bryndís vinkona átti líka afmæli þann 10. bestu kveðjur til þín
og til lukku. Og til lukku með nýju vinnuna, aftur orðin
freyja. knuz
Annars er all brjálað að gera þessa dagana, það hlýtur allt að
smella saman að lokum þótt það líti alls ekki út fyrir það í
augnablikinu.
Jæja krúttin mín bið að heilsa úr hitanum.
»
Síður: 1 2 3
|
|